Helma er íslensk myndlistarkona sem sérhæfir sig í olíu og blandaðri tækni. Hún hefur áralanga reynslu og hefur þróað sérstöðu í gegnum sérstakan grunn á striga sem skapar dýpt og sterka vídd í verkum hennar. Verk Helmu eru auðþekkjanleg fyrir áferð, kraft og tilfinningu og hafa notið vinsælda bæði á Íslandi og erlendis.
Áhugi hennar á myndlist kviknaði snemma og var það amma hennar, myndlistarkennari, sem sá hæfileikana og lagði grunninn að listrænu ferðalagi hennar.