Uppboðið

Við höldum mánaðarleg uppboð þar sem hver og einn getur boðið í listaverk. Uppboðin fara fram bæði á vefsíðu okkar. Hæsta boð í lok uppboðsins vinnur.

Þú skráir þig á vefsíðu Uppboðshússins með því að smella á "Aðgangur" og stofnar notanda með því að skrá inn símanúmerið þitt. Þegar þú hefur skráð þig getur þú boðið í allar vörur sem eru í boði.

Lágmarksboð er mismunandi eftir vörum og er skilgreint í uppboðsskilmálum hverju sinni.

Hámarksboðið þitt er sú upphæð sem þú ert tilbúin/n að greiða fyrir verkið hverju sinni.

Lágmarskverð er trygging seljanda gagnvart því að verkið seljist á of lágu verði. Ef að hamarshögg er undir lágmarksverði þá selst verkið ekki. Hæstbjóðandi fær þá ekki verkið og seljandinn selur ekki verkið.

Ef boð berst í verk þegar innan við eina mínútur (60 sek.) eru eftir af uppboðinu framlengist uppboðið um eina mínútu (60 sek.).

Já, öll tilboð sem berast í listaverk í gegnum uppbodshusid.is eru skuldbindandi. Sjá skilmála fyrir ítarlegri upplýsingar.

Verðmat verkanna er byggt á ýmsum upplýsingum, meðal annars höfundi verks, stærð, efni, söluverð svipaðra verka og sögulegum upplýsingum verksins. 

Ef þú átt hæsta boð við lok uppboðs þá færð þú sjálfkrafa tölvupóst á netfangið sem þú skráðir með staðfestingu. Í tölvupóstinum eru allar helstu upplýsingar um afhendingu, greiðslu o.s.frv. Krafa verður einnig send í heimabanka með eindaga eftir 3 virka daga.

Á uppboðum er lagt 12% uppboðsgjald ofan á slegið verð. Innifalið í því gjaldi er fylgiréttargjald skv. höfundalögum nr. 73/1972, sem hæstbjóðandi greiðir.

Kaupa verk á Uppboðshúsinu

Kaupandi greiðir 12% þóknun ofan á lokaverð vörunnar.

Við vinnum með fagaðilum og sérfræðingum til að sannreyna uppruna og ástand vörunnar. Allar upplýsingar um vöruna eru birtar við skráningu þess á uppboð.

Já, öll verk á uppboðum eru til sýnis í Mobility – Urriðaholtsstræti 24, 210 Garðabæ þegar uppboð hefur byrjað.

Þegar unnið hefur verið úr uppboðsgögnum mun krafa verða send kaupendum í netbanka innan 3ja virkra daga eftir lok uppboðs. Ef áhugi er á að greiða á annan máta er hægt að senda fyrirspurn á info@uppbodshusid.is

Afhending seldra verka fer fram í Mobility – Urriðaholtsstræti 24 vikuna eftir uppboð milli kl 11-16 virka daga. Einnig er hægt að fá verkið sent ef óskað er sérstaklega eftir því.

Selja verk á Uppboðshúsinu

Uppboðshúsið tekur á móti listmunum til sölu á vefuppboðum. Best er að smella á "Selja Verk" og fylla út upplýsingarnar þar. Við höfum svo samband við þig.

Seljandi greiðir 12% af lokaverði vörunnar.

Þegar við höfum upplýsingar um listaverkið er unnið verðmat á verkinu og er verðmatið ásamt upplýsingum um næsta uppboð sent til baka á seljanda. Ef seljandi er sáttur við verðmat þá setur hann upp lágmarksverð. Þegar uppboði er svo lokið er andvirði sölunnar greitt til seljanda að frádreginni söluþóknun.

Ef varan selst ekki hefur þú möguleika á að skrá hana í næsta uppboð eða taka hana af skrá. Við munum hafa samband við þig.

Use this text to share the answer to the question with your customers.