1. Almenn ákvæði
Allir munir eru seldir á uppboði Uppboðshússins ehf. Samningur telst kominn á þegar uppboðshaldari slær verkið hæstbjóðanda.
2. Ástand muna
Allir munir eru seldir í því ástandi sem þeir eru í við hamarshögg.
Kaupanda ber ábyrgð á að kynna sér ástand muna áður en boð er lagt fram, hvort sem er með skoðun á forsýningu, ljósmyndum og lýsingum á vefsíðu, eða með því að leita upplýsinga hjá starfsfólki Uppboðshússins.
Flestir munir sem seldir eru á uppboðum eru notaðir eða gamlir og kunna því að bera merki um slit, viðgerðir eða aðra galla. Slíkir gallar eru á ábyrgð kaupanda og hvorki Uppboðshúsið né seljandi bera ábyrgð á þeim.
3. Ágreiningur um boð
Komi upp ágreiningur um hver hafi átt hæsta boð, eða reynist fleiri en einn hafa boðið sama hæsta boð, áskilur uppboðshaldari sér rétt til að ákveða hvort viðkomandi muni verði boðinn upp að nýju. Ákvörðun uppboðshaldara er endanleg.
4. Uppboðsgjöld og höfundarréttargjald
Ofan á hamarshögg leggst 12% uppboðsgjald.
Auk þess leggst á fylgiréttargjald (höfundarréttargjald) samkvæmt lögum nr. 117/2005.
5. Virðisaukaskattur
Af bókum leggst 11% virðisaukaskattur á uppboðsgjaldið.
Af skrautmuna, silfurmunum og öðrum sambærilegum munum leggst 24% virðisaukaskattur á uppboðsgjaldið.
6. Greiðslur
Greiðsla fyrir keypta muni skal fara fram við lok uppboðs. Krafa er send kaupanda eigi síðar en þremur dögum eftir uppboð.
7. Afhending muna og geymslugjöld
Keypta muni skal sækja innan 7 daga frá kaupum. Að þeim tíma liðnum reiknast geymslu- og tryggingagjald.
8. Persónuvernd
Meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi persónuverndarlög og GDPR.
9. Varnarþing
Varnarþing Uppboðshúss ehf. er við Héraðsdóm Reykjaness.
10. Upplýsingar
Uppboðshúsið ehf.
Urriðaholtsstræti 24
210 Garðabær
Sími: 898 9097
Netfang: info@uppbodshusid.is