Pétur Halldórsson (f. 1952) nam myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1969–1973 og hélt síðan til Bretlands þar sem hann stundaði nám við The Middlesex University of London 1975–1976.
Hann hefur verið virkur á sýningar vettvangi um áratugaskeið, haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði á Íslandi og erlendis. Samhliða eigin listsköpun hefur hann lagt sitt af mörkum til kennslu innan myndlistar.